Hvar
birtast smáauglýsingarnar? Smáauglýsingar sem skráðar
eru hér birtast bæði í þingeyska auglýsingamiðlinum
Skránni og hér á Skarpur.is. Skráin
kemur út alla fimmtudaga og verða auglýsingar
að vera skráðar fyrir kl. 17:00 á þriðjudögum ef þær eiga að birtast í Skránni á næsta fimmtudegi.
Skráðar smáauglýsingar birtast
á Skarpur.is og eru þar inni í eina viku frá
birtingardegi.
Hvað kostar smáauglýsing? Smáauglýsing kostar 1.130 kr. ef
greitt er með greiðslukorti eða staðgreitt. Smáauglýsing með mynd kostar 2.500 kr. Ef greitt
er með gíróseðli bætist við 250
kr. innheimtukostnaður.
Hvaða greiðslumöguleikar
eru í boði? Í boði eru þrír greiðslumöguleikar,
staðgreiðsla, gíróseðill og greiðslukort.
Þegar smáauglýsingin er skráð í gegnum innsláttarformið hér að neðan þá er hægt að velja um greiðslufyrirkomulag. Athugið að ef ekki er valið að greiða með gíróseðli verður að hafa samband við skrifstofu okkar og ganga frá greiðslum í gegnum síma. Síminn á skrifstofunni er 464-2000.
Hvernig á að fylla út
skráningarformið? Til að smáauglýsingin skráist
verður að fylla rétt út í skráningarformið.
Fylla verður út bæði titil, hámark 30
stafir með bilum, og texta, hámark 300 stafi með
bilum. Einnig þarf að fylla út allar upplýsingar
um sendanda og velja þann greiðslumáta sem hentar
best.